Atlantsolía hefur gert samning við Svar tækni um kaup á Swyx IP símkerfi. Við undirritun samnings kom fram í máli Alberts Þór Magnússonar framkvæmdastjóra Atlantsolíu að fyrirtækið leiti allra leiða til að ná fram hagkvæmni og sparnaði í rekstri enda keppist það við að bjóða sem lægst verð á bensín- og olíu markaði. ,,Með Swyx IP símkerfinu lækkar símkostnaður við útlönd verulega og eins sá möguleiki að vera ekki með dýrt símtæki á hverju borði heldur eingöngu tölvusíma sem býður þó mun meiri möguleika en símtækin.” segir Albert og bætir við að ,,Við sjáum einnig fram á tímasparnað og aukið hagræði fyrir starfsmenn okkar sem geta t.d tengst símkerfinu hvar sem er í heiminum í gegnum fartölvur sínar.”Haukur Hauksson söluráðgjafi Svar tækni segir það ánægjulegt að fá fyrirtæki eins og Atlantsolíu til að innleiða IP símkerfi enda sé Atlantsolía fyrirtæki sem, rétt eins og Swyx IP, leitar nýrra leiða til að uppfylla þarfir viðskiptavina sinna.Swyx IP símkerfi eru þau mest seldu í Evrópu á markaði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki með tæplega 17% markaðshlutdeild. Swyx byggir tækni sína á ,,hreinu IP” og hugbúnaði sem byggir á Microsoft umhverfinu en fyrirtækið er gullvottaður samstarfsaðili Microsoft.Svar tækni er umboðsaðili Swyx IP símkerfa á Íslandi en yfir 50 fyrirtæki hafa tekið kerfið í notkun á síðastliðnu ári.
Frétt skráð 27.02.07
Fáðu upplýsingar um öll helstu tilboðin sem standa til boða
Skrá á póstlista
Acer fartölvurSwyx IP símkerfiPanasonic 42" SjónvarpTV Flakkari