Svar tækni ehf. hefur verið viðurkenndur sölu og þjónustuaðili Acer á Íslandi frá árinu 2003. Einnig veitir Svar tækni ehf. og viðurkenndir endursöluaðilar þess einir 3ja ára ábyrgð á Acer far- og borðtölvum. Svar tækni rekur eitt fyrirtækja á Íslandi viðurkennd þjónustuverkstæði vottað af Acer með sérþjálfuðum tæknimönnum.

 

Frá því Acer var sett á laggirnar árið 1976 hefur það vaxið jafnt og þétt og er nú einn af fimm stærstu PC-tölvuframleiðendum heimsins. Tækniþróun fyrirtækisins hefur það að markmiði að útbúa notendavænar, en jafnframt framsæknar lausnir fyrir hinn almenna tölvunotanda. Vörulína fyrirtækisins inniheldur meðal annars fartölvur, borðtölvur, netþjóna og geymslukerfi, myndvarpa, jaðartæki, LCD-sjónvörp og -skjái.

 

Nánari útlistun á sölutölum

 

 

Stiklað á stóru í sögu Acer

 

1976

Acer er stofnað undir nafninu Multitech, með áherslu á viðskipta- og vöruhönnun. "Multitech" nafnið var notað fram til 1987, þegar því var breytt í "Acer".

 

1979

Acer hannar fyrstu fjöldaframleiddu tölvuna fyrir útflutning frá Taiwan.

 

1980
Altos ACS-580 kynnt, fyrsta fjölnotenda micro-system tölvan.

 

1981

MicroProfessor-I verður fyrsta vörumerki fyrirtækisins.

 

1982

MicroProfessor-II verður fyrsta 8-bita heimavélin í Taiwan.

 

1983
Altos þjónarnir fyrstir til að nýta Xenix stýrikerfið, útgáfa Microsoft af UNIX kerfinu.

 

1984
Acer Peripherals komið á fót, nú BenQ.

 

1986
Acer slær IBM við og er fyrr á markað með 32-bita tölvur

 

1987

Acer nafnið tekið upp

 

1990

Acer eignast 'Altos'

 

Stan Shih nefndur 'Einn af 25 mikilvægustu mönnum í asísku viðskiptalífi' af Fortune tímaritinu

 

1992

Acer setur á markað heimsins fyrsta 386SX-33 kubba settið

 

1994
Acer kynnir heimsins fyrstu dual-Pentium tölvu.

 

1995
Aspire verður heimsins þægilegasta margmiðlunar tölva að mati neytenda.


Heildar tekjur Acer fara yfir 5 milljarða bandaríkjadala

 

1996

Acer skrifar undir gagnkvæman einkaleyfa samning við IBM, Intel og Texas Instruments sem leyfir hverju fyrirtækjanna að nýta sér tækni hinna óháð einkaleyfum.


AcerBasis tölvan sett á markað, verðlögð undir 500 bandaríkjadölum. Þetta hrindir af stað verðlækkun á tölvumarkaði.

  

1997

Acer Nuovo, fyrsta fartölvan með yfir 8 klukkustunda rafhlöðuendingu, kemur á markað.

 

1998
Acer yfirtekur Texas Instruments, stórann reiknivéla og örtækni framleiðanda.

 

Acer TravelMate 700 sett á markað, fyrsta fartölvan með innbyggðu alþjóðlegu internet módemi.

 

1999
IBM og Acer Group stofna til sjö-ára þróunar og tækni samstarfs.

 
Stan Shih valinn International Business Executive of the Year af alþjóða viðskipta akademíunni.

 
Stan Shih tilnefndur til þriðju árlegu Hall of Fame verðlaunanna ásamt 12 öðrum frumkvöðlum í alþjóða viðskiptalífinu.

 

2000
Asiaweek tímaritið velur Stan Shih sem einn af 25 Asia's Digital Elite.

 

Acer TravelMate 340 sett á markað, fyrsta fartölvan sem nýtir sér 802.11b, útbreiddasta þráðlausa staðalinn.

 

Acer TravelMate C100 Tablet PC sett á markað, fyrsta tölvan með snúanlegum snertiskjá.

 

2001

Acer sviptir hulunni af nýrri kynslóð af e-viðskiptum, nefnt MegaMicro e-Business sem færði fyrirtækið frá því að vera vöru-hönnunar miðað að því að einbieta sér að viðskiptavininum.

 

2002
Hin nýja Acer Aspire tölva sett á markað, setur ný viðmið á alheims tölvumarkaðnum.

 

2003
Acer TravelMate 800 sett á markað, fyrsta fartölvan
 sem nýtir Intel® Centrino® tæknina.

 

Acer TravelMate C110 Tablet PC sett á markað, fyrsta Tablet fartölvan sem nýtir Intel® Centrino® tæknina.

 

Acer Ferrari 3000 sett á markað, fyrsta fartölvan sem gefin er út í samstarfi við Ferrari.

 

2004

Acer Ferrari 3200 sett á markað, fyrsta fartölvan til að nýta sér 64-bita tækni AMD.

 

2005

Acer fartölvur eru þær söluhæstu á Evrópumarkaði annað árið í röð og Acer verður fjórði stærsti tölvuframleiðandi í heimi.

 

2006

Acer er fyrsta fyrirtækið til að setja á markað heila vörulínu af fartölvum með Intel Centrino Duo Core örgjörvum í nánu samstarfi við Intel.
Síðar á árinu var Acer enn og aftur fyrstir með Core 2 Duo örgjörva í fartölvur, næstu kynslóð af tveggja kjarna örgjörvum.