Íslendingar veita nútíma símalausn fyrir loftlagsráðstefnu SÞ í Kaupmannahöfn
Í desember hýsir Kaupmannahöfn 15. loftlagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna en þar á að móta nýjan loftlagssáttmála sem taka á við af Kyoto-bókuninni sem rennur úr gildi árið 2012. Mikið er lagt í að ráðstefnan takist vel enda mikilvægur málaflokkur sem Ban Ki-moon aðalritari SÞ hefur lagt mikla áherslu á. Mikið umstang er í Kaupmannahöfn af þessum sökum en skapa þarf vinnuaðstöðu fyrir þá 20.000 þáttakendur allstaðar að úr heiminum sem sækja ráðstefnuna, þar á meðal verða um 120 ráðherrar eða fulltrúar ríkisstjórna hinna ýmsu landa.
Eftir ítarlega skoðun Sameinuðu Þjóðanna varð símkerfislausn frá þýska fyrirtækinu Swyx fyrir valinu en íslenska fyrirtækið Svar tækni ásamt dótturfélagi sínu, Svar Danmark, eru dreifingar- og þjónustuaðilar fyrir Swyx í Danmörku og Íslandi.
„Sérfræðingar Svar tækni verða dótturfélagi okkar í Danmörku innan handar bæði á uppsetningartímanum og jafnframt á meðan ráðstefnunni stendur. Við erum afar stolt af þessu verkefni og sýnir það mikið traust bæði á þekkingu okkar og reynslu, sem og Swyx IP símkerfinu sjálfu. Á Íslandi eru nú þegar um 150 fyrirtæki að nýta sér Swyx símkerfið og salan er jafnframt í sókn í Danmörku.“ segir Rúnar Sigurðsson framkvæmdastjóri Svar tækni.
„Fyrir stofnun eins og SÞ, sem hefur í eðli sínu dagleg samskipti út um allan heim, allan sólarhringinn, er mikilvægt að halda kostnaði við millilandasímtöl í lágmarki og var það stór þáttur í að velja Swyx IP símkerfalausnina frá okkur“, segir Peter Hammerich framkvæmdastjóri Svar Danmark sem er dreifingaraðili Swyx í Danmörku en hið íslenska Svar sér um dreifingu og þjónustu símkerfisins á Íslandi.
„Skrifstofa Sameinuðu Þjóðanna í þýskalandi hefur notast við Swyx símkerfið undanfarið ár en góð reynsla þeirra varð til þess að þeir völdu Swyx sem símkerfi fyrir þessa mikilvægu ráðstefnu. Jafnframt þeim sparnaði sem næst með notkun IP símkerfi býður Swyx marga aðra möguleika sem nýtast SÞ, t.d samþættingu við tölvupóstkerfi og fulla samþáttun farsíma við símkerfið.“
Sem dæmi um notkunarmöguleika Swyx má nefna að þegar starfsmaður Sameinuðu Þjóðanna í Þýskalandi hringir í samtarfsfélaga sinn í New York leitar símkerfið að ódýrustu leið fyrir símtalið, án þess að notandinn þurfi að hafa fyrir því. Í mörgum tilfellum er hægt að ná kostnaði við millilanda símtöl niður um allt að 90%. En lækkun á rekstrarkostnaði er ekki það eina sem Sameinuðu Þjóðirnar nýta sér með hjálp Swyx. Um leið og hringt er inn á skrifstofu SÞ opnast tengiliðaspjald þess sem hringir inn en með því móti sjá starfsmenn SÞ samskiptasöguna á augabragði og geta á betri hátt þjónustað umbjóðendur sína.
Nánari upplýsingar má fá hjá Daníel Rúnarssyni vöru- og markaðsstjóra Svar tækni í síma 510 6005 eða 860 6004.
Til baka
|