Svar tækni hefur ákveðið að veita samtökunum Geðhjálp jólagjöf ársins en fyrirtækið hefur undanfarin ár valið sérstakt málefni um hver jól í stað þess að senda jólakort til viðskiptavina. Það er von okkar að gjöfin nýtist Geðhjálp til enn frekari góðra verka en samtökin hafa verið áberandi undanfarið í baráttu sinni. Svar tækni telur þá baráttu mikilvæga og vill því leggja málefninu lið á þennan hátt. Jólagjöfin að þessu sinni mun nýtast skjólstæðingum samtakanna sér til afþreyingar og skemmtunar.Geðhjálp eru hagsmunasamtök sem voru stofnuð 9.október 1979. Þeim er ætlað að gæta hagsmuna þeirra sem þurfa eða hafa þurft aðstoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra, og annarra sem láta sig geðheilbrigðismál varða. Tilgangur félagsins er að bæta hag þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða svo og aðstandenda þeirra.Starfsfólk Svar tækni óskar jafnframt öllum viðskiptavinum og vildarmönnum fyrirtækisins gleðilegra jóla.
Hér fyrir neðan má sjá þá Rúnar Sigurðsson og Reyni Guðjónsson frá Svar tækni afhenda Sveini Magnússyni frá Geðhjálp jólagjöfina.
Fáðu upplýsingar um öll helstu tilboðin sem standa til boða
Skrá á póstlista
Acer fartölvurSwyx IP símkerfiPanasonic 42" SjónvarpTV Flakkari