Nánari upplýsingar um starfsemina: 
Verslunin
Starfsfólk
Um fyrirtækið


Svar tækni er frumkvöðull á sviði upplýsingatækni sem leitast við að veita viðskiptavinum sínum persónulega þjónustu. Svar tækni er náinn samstarfsaðili virtra framleiðanda á borð við Swyx, Acer, Panasonic og Microsoft en lausnir og vöruúrval þeirra myndar kjarnastarfsemi fyrirtækisins.

Svar tækni rekur jafnframt verslun í höfuðstöðvum sínum að Síðumúla 37 þar sem einstaklingar jafnt sem fyrirtæki geta sótt faglega ráðgjöf og gengið að miklu úrvali raftækja í víðum skilningi, frá tölvum og fylgibúnaði til sjónvarpa og annara myndlausna.

Hjá Svar tækni er uppsöfnuð mikil reynsla og þekking sem gerir fyrirtækið að leiðandi aðila á sviði upplýsingatækni. Starfsmenn söludeildar okkar á fyrirtækjasviði sérhæfa sig í vönduðum heildarlausnum fyrirtækja og stofnana.

Við leggjum áherslu á traust og árangursríkt samstarf við núverandi viðskiptavini og  bjóðum nýja viðskiptavini velkomna í hópinn.

Fjölmörg fyrirtæki hafa valið að nýta sér reynslu og þekkingu starfsmanna okkar til að tryggja öryggi og hagkvæmni í rekstri.  Framundan eru spennandi tímar þar sem samþætting síma- og tölvukerfa mun verða í brennidepli og munum við leggja áherslu á að viðskiptavinir okkar geti nýtt sér nýjustu tækni hverju sinni.
Við bjóðum þig velkominn í verslun okkar að Síðumúla 37 og líta á vöruúrvalið með eigin augum - sjón eru sögu ríkari.