Uniconta er fullkomið nútíma bókhaldskerfi (ERP) sem er sveigjanlegt og hagkvæmt í uppsetningu. Uniconta hefur fjölbreytta möguleika og á auðvelt með að eiga samskipti við önnur kerfi. Þannig getur þú valið bestu kerfin fyrir hvert verkefni og fyrirtækið óháð þeim einingum sem eru í boði í bókhaldskerfinu sjálfu. Þannig er mögulegt að byggja upp framúrskarandi lausn fyrir hvert fyrirtæki.
Við val á Uniconta byrjum við að finna saman hverjar þarfirnar eru í þínu fyrirtæki og hvert það stefnir. Við setjum í framhaldinu upp kerfi sem auðveldar alla vinnu við bókhald og upplýsingagjöf í fyrirtækinu á sama tíma og kerfið getur vaxið í takt við þróun fyrirtækisins.
Ný grunnhönnun á Uniconta býður upp á mikinn sveigjanleika og mun styttri innleiðingartíma en áður hefur þekkst. Munurinn er það mikill að þeir sem hafa upplifað innleiðingu á öðrum viðskiptalausnum trúa vart hversu skamman tíma uppsetningin tekur og hversu miklu hagkvæmari þessi viðskiptalausn er.
Tengingar við önnur kerfi er auðveldari en áður hefur þekkst og mun fleiri mögleika í boði þegar kemur að tengingum við önnur kerfi. Aðgengi að öllum upplýsingum og framsetning á þeim er þægileg og áhrifarík.
Allar aðgerðir í kerfinu eru einfaldar og aðgengilegar. Það tekur skamman tíma að koma nýjum notendum inn í öll verkefni. Sjálfvirkur innlestur, bókanir og afstemningar eru hluti af öllum þeim fjölda leiða sem gera allt bókhald skilvirkara.
Að velja bókhaldskerfi og viðskiptahugbúnað getur verið stór ákvörðun. Slíkar ákvarðanir eru gjarnan teknar með framtíðarsýn fyrirtækja í huga og hugsaðar til lengri tíma. Það er því afar mikilvægt að kerfið geti vaxið með fyrirtækinu.
Uniconta hentar minni og meðalstórum fyrirtækjum einstaklega vel og þjónar mörgum stórfyrirtækjum með framúrskarandi hætti. Flest öll fyrirtæki á Íslandi eru af þeirri stærðargráðu að Uniconta er mjög vænlegur kostur fyrir þau.
Að færa skilvirkt bókhald er mikilvægur þáttur í rekstri fyrirtækja. Einn af mikilvægustu þáttum við rekstur nútímafyrirtækja er auðvelt aðgengi að áreiðanlegum upplýsingum þegar á þarf að halda. Með Uniconta er auðveldara að vinna bókhaldið og hafa upplýsingarnar tilbúnar mun fyrr en áður hefur þekkst.