Af hverju Vefafritun?
Það er staðreynd að gögn á netþjónum og tölvum eru viðkvæm fyrir ýmiskonar hættum. Diskar geta gefið sig, vírusar valdið skaða og gagnagrunnar skemmst. Einnig er algengt að tölvum sé hreinlega stolið eða verði eldsvoða eða vatnsleka að bráð. Þannig geta öll verðmætin horfið í einu vetfangi. Séu afritunarmálin ekki í öruggum farvegi getur endurheimt þessara verðmætu gagna orðið mjög kostnaðarsöm og tímafrek, eða jafnvel ómöguleg.
Flestir stjórnendur fyrirtækja gera sér grein fyrir mikilvægi þeirra gagna sem þeir eiga og að gagnatap getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir fyrirtækið. Þó er það svo að margir stjórnendur leggja lítið upp úr afritun gagna og láta hana mæta afgangi bæði í tíma og kostnaði. Ástæður þess eru tvíþættar: hefðbundnar afritunaraðferðir eru tímafrekar og krefjast daglegrar athygli starfsmanna og svo eru alltof fáir sem átta sig á því að hversu alvarlegt það er að tapa gögnum. Þessu til viðbótar krefst hefðbundin afritun töluverðrar tækniþekkingar sem ekki er til staðar innan lítilla fyrirtækja, sérstaklega þegar kemur að endurheimt gagnanna. Vefafritun leysir þessi vandamál með einföldum hætti og gerir afritun einfalda og auðvelda.
Vefafritun er ný og betri afritunaraðferð Vefafritun er einföld og örugg leið til að vernda gögn þíns fyrirtækis. Afrit er tekið með öruggum og sjálfvirkum hætti yfir internetið og geymt á öruggum stað í gagnamiðstöð fjarri frumgögnunum (sem aftur er afritað á þriðja staðinn). Ef þú lendir í vandræðum með gögnin þín, þá ertu örugg(ur) um að geta endurheimt þau með einföldum hætti. Þrátt fyrir augljósa kosti Vefafritunar er þessi aðferð mun ódýrari en hefðbundnar afritunaraðferðir. Skráðu þig fyrir prufuaðgangi og fáðu tilboð í afritunina hjá okkur. Þú munt komast að sömu niðurstöðu.
Ódýrt Afritun á verðum sem ekki hafa sést áður. Þegar allt kemur til alls er afritun hjá okkur ódýrari en hefðbundin afritun á segulbönd.
Einfalt Mjög einfalt í uppsetningu og vinnslu. Hlaðið niður hugbúnaðinum, veljið hvað á að afrita, veljið hvenær á að afrita. Endurheimt gagna er líka mjög einföld. Þú getur endurheimt gögnin í gegnum hugbúnaðinn eða frá hvaða vafrara sem er með notendanafni, leyniorði og dulkóðunarlykli.
Sjálfvirkt Eftir uppsetningu keyrir hugbúnaðurinn sjálfkrafa en þú færð staðfestingu í tölvupósti um að afritun hafi farið fram.
Öruggt Vertu áhyggjulaus vitandi að gögnin þín eru dulkóðuð og geymd á öruggum stað tilbúin til endurheimtunar. Við geymum gögnin í gagnageymslu sem er spegluð yfir á annan stað.
Yfirgripsmikið Leyfir afritun frá mörgum vélum, t.d. fartölvum og heimavélum. Öll afrit fyrirtækisins eru þó undir stjórn kerfisstjóra og reikningur sendur á einn aðila, þ.e.a.s. fyrirtækið sjálft. Lausnin afritar auðveldlega eftirfarandi:
• Microsoft Exchange Server 2000 / 2003, Microsoft SQL Server 7.0 / 2000 • Lotus Domino/Notes 5.0 og nýrra • Oracle 8i og nýrra. MySQL 3.2.4 og nýrra, Windows System State • Outlook og Outlook Express (t.d. *.pst, *.dbx og *.wab) , Almenn skjöl (t.d. *.doc, *.xls) • Styður afritun á breytingum innan skjals (notar in-file delta tækni) • Styður afritun á opnum skrám í Windows XP/2003 (Volume Shadow Copy) • Styður afritun á Windows NTFS aðgangsréttindi, Linux aðgangréttindi og modes, Mac OS X metadata og resource forks
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í síma 510-6000 fyrir nánari upplýsingar
Verðskrá:
Mánaðarlegur kostnaður miðast við þjappað gagnamagn í gagnamiðstöðinni í lok hvers mánaðar sem segir til um í hvaða gagnapakka viðkomandi fellur. Hægt er að setja hámark á gagnamagnið þannig að ekki komi til óvæntur reikningur vegna mistaka eða óeðlilegrar aukningar á gagnamagni. Gera má ráð fyrir að þjappað gagnamagn sé á milli 50-70% af afrituðu gagnamagni, en það fer þó verulega eftir tegund þeirra gagna sem afrituð eru.
| Gagnapakki (afritað magn - þjappað) |
Mánaðargjald án VSK |
| Allt að 1 GB |
1.200 kr. |
| Allt að 5 GB |
2.750 kr. |
| Allt að 10 GB |
5.000 kr. |
| Allt að 20 GB |
8.000 kr. |
| Allt að 30 GB |
10.500 kr. |
| Allt að 40 GB |
12.000 kr. |
| Allt að 50 GB |
12.500 kr. |
| Allt að 100 GB |
18.000 kr. |
| Allt að 150 GB |
22.500 kr. |
| Meira en 150 GB |
TILBOÐ | |