Ný lög um tímaskráningu – Hvað þarft þú að vita?

September 5, 2024
 

Kæri viðtakandi,

Þann 1. júlí síðastliðinn tóku gildi ný lög um tímaskráningu starfsmanna, sem skylda atvinnurekendur til að setja upp hlutlægt, áreiðanlegt og aðgengilegt tímaskráningarkerfi fyrir starfsmenn sína. Markmið laganna er að tryggja að allir starfsmenn hafi aðgang að rafrænu kerfi til að skrá daglegan og vikulegan vinnutíma, ásamt því að gefa upplýsingar um vinnustundir yfir daginn.

Hér getur þú kynnt þér lög 58/2023 um breytingu á lögum 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

Sjá hér hlekk inn á vef Alþingis. Skoða hér.


Svar býður upp á fjölbreyttar tímaskráningarlausnir
:

  • Intempus: Fullkomið fyrir þá sem eru mikið á ferðinni. Með Intempus getur þú skráð verkin þín með appi í símanum, úthlutað verkum, skráð efni, tekið myndir og fylgt eftir óunnum verkum. Hægt er að tengja Intempus við Uniconta og Payday, þannig að tímar og verk flæða sjálfvirkt á milli kerfa.
  • Curio Time: Hentar vel fyrir þá sem vinna á hefðbundnum skrifstofutíma og eða eru í vaktavinnu. Kerfið heldur utan um vaktir, orlof, veikindi og vinnutíma.
  • Uniconta Work: Heldur utan um tíma starfsmanna, orlof, veikindi og uppfyllir allar kröfur nýju laganna. Uniconta Work fylgir með í áskrift að Uniconta, en einnig er hægt að fá áskrift fyrir þá sem ekki eru núverandi notendur í Uniconta.
  • TimeLog: Fyrir þá sem vinna mest við tölvu og þurfa að skrá tíma beint á verk. TimeLog er eitt öflugasta tímaskráningarkerfi á íslenska markaðinum og tengist beint við Uniconta.

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um tímaskráningarlausnir frá Svar, ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 510-6000 eða senda tölvupóst á sala@svar.is.

Virðingarfyllst,                              

Starfsfók Svar ehf

 

 
author avatar
svar2020