Viðskiptaskilmálar
Samningar um viðskipti við Svar tækni ehf.
1. Viðskiptaskilmálar – Samningar um viðskipti við Svar tækni ehf
Almennir skilmálar um viðskipti við Svar
Þessir skilmálar gilda um öll viðskipti Svar við viðskiptavini félagsins, nema um annað sé samið sérstaklega.
Viðskiptaskilmálarnir eru ófrávíkjanlegir og gilda um öll þau atriði sem fram í þeim koma, nema sérstaklega sé um þau samið með skriflegum hætti.
Svar áskilur sér rétt til að breyta skilmálum með 30 daga fyrirvara með uppfærslu á vefsíðu eða fréttabréfum.
Upphaf viðskipta
Viðskiptavinir geta hafið viðskipti í gegnum síma, tölvupóst eða vefeyðublöð. Samningur telst kominn á ef viðskiptavinur staðfestir með rafrænum hætti eða með tölvupósti að tilboð hafi verið samþykkt.
Samningar og viðaukar
Samningar tilgreina gildistíma, upphafsdag, umfang, vörur, þjónustu, verð og ábyrgðartímabil. Staðlaðir samningar eru til 24 mánaða frá undirritun og óuppsegjanlegir nema annað sé tekið fram.
Uppsögn samninga
Án sérstakra bindingartímabila er hægt að segja samningum upp með eins mánaðar fyrirvara miðað við mánaðamót. Við uppsögn skulu aðilar skila skjölum og búnaði eins og um er samið.
2. Umboðsviðskipti og samstarfsaðilar
Svar kaupir og selur búnað í gegnum viðurkennt samstarf. Þriðji aðili getur veitt ábyrgðarþjónustu.
Samstarfsaðilar
Svar ber ekki ábyrgð á viðskiptum samstarfsaðila við viðskiptavini þeirra en leitast engu að síður við að aðstoða samkvæmt samstarfssamningum.
Samstarfsaðilar mega nota rafræn samskipti; rafrænar undirskriftir eru gildar. Aðilar skulu gefa sanngjörn tækifæri til að uppfylla skyldur áður en brot er haldið fram. Kröfur fyrnast eftir tvö ár.
3. Sala á búnaði og þjónustu
Afhending á búnaði og þjónustu
Svar leitast við afhendingu innan umbeðinna tímaramma. Er hann jafnan áætlaður og ekki bindandi fyrir Svar, nema það sé tekið fram með skýrum hætti.
Sala á búnaði fellur undir íslensk lög um neytendavernd (nr. 50/2000), þar sem þessir skilmálar gilda þar sem við á.
Innkaupaþjónusta
Innkaup eru háð skriflegri pöntun viðskiptavinar sem Svar samþykkir. Svar heldur eignarrétti að hinum selda vélbúnaði þar til andvirði hans er að fullu greitt.
Hugbúnaður og leyfisbundin forrit framselja aðeins notkunarrétt, ekki eignarhald. Hugbúnað af þessu tagi má ekki selja, leigja, framselja eða afhenda öðrum, nema um það sé sérstaklega samið.
Áhætta flyst við afhendingu eða uppsetningardag.
Skilaréttur
30 daga skilfrestur frá reikningsdegi. Full endurgreiðsla er möguleg innan 14 daga ef búnaður er:
- Framvísað með kvittun
- Í endursöluhæfu ástandi
- Fullkominn með öll fylgihlutir
- Án uppsettra hugbúnaðar
- Ekki sérpantaður
Svar áskilur sér rétt til að hafna skilum á búnaði eða um fulla endurgreiðslu séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt.
Starfsfólk getur samþykkt skil sem uppfylla ekki skilyrði, með hámarks 60% endurgreiðslu.
Endursala og endurráðstöfun
Búnaður er seldur til eigin nota viðskiptavinar án ásetnings um endursölu, nema um annað sé samið.
Sala á þjónustu
Þjónusta er háð skriflegum samningum eða innkaupapöntunum viðskiptavinar sem Svar samþykkir skriflega.
Umfang þjónustu
Svar veitir upplýsingatækniþjónustu, bókhaldsþjónustu, skattskýrslugerð, ráðgjöf um viðskiptalausnir, uppsetningu búnaðar og viðhald eins og tilgreint er í einstökum tilboðum og samningum.
Tímabundin þjónusta er veitt í skilgreindan tíma og framlengist sjálfkrafa að þeim tíma loknum nema annar hvor samningsaðili segi henni upp með eins mánaðar fyrirvara.
Viðbótarverk krefst sérstaks samnings og sérstakrar reikningagerðar.
Starfsfólk og undirverktakar
Hvor aðili ber ábyrgð á sínu starfsfólki. Svar getur notað eigið starfsfólk, undirverktaka eða þriðja aðila eftir þörfum. Gerð samnings stendur ekki í vegi fyrir því að Svar, starfsfólk Svars eða undirverktakar leysi af hendi hliðstæð þjónustuverkefni fyrir aðra aðila.
Hugbúnaður frá öðrum – forritapakkar
Hugbúnaður t.d. upplýsingakerfi og leyfisforrit t.d. stýrikerfi og notendahugbúnaður er seldur á forsendum framleiðandans eða eiganda réttindanna, hvort sem um er að ræða Svar eða þriðja aðila. Yfirleitt er um að ræða sölu á einkaleyfisbundnum, óframseljanlegum réttindum til notkunar þannig að eignarréttur til hugbúnaðarins er ekki seldur, heldur aðeins réttindin til að nota hann. Heimild til notkunar kann að gilda um ákveðinn umsaminn tíma.
Hugbúnað af þessu tagi má ekki selja, leigja, framselja eða afhenda öðrum, nema um það sé sérstaklega samið. Afritun er háð takmörkunum, er framleiðandi eða eigandi hugbúnaðarins setur. Hugbúnaðarþjónusta kann að vera í boði við þessa tegund hugbúnaðar. Framleiðandi hugbúnaðarins eða Svar í umboði hans veita þá þessa þjónustu. Að öðru leyti vísast í skilmála viðkomandi eiganda/framleiðanda hugbúnaðarins.
Sjálfvirk svörun og gervigreind
Svar kann að nýta sjálfvirkar lausnir, þar á meðal gervigreind og svokölluð snjallmenni, við samskipti við viðskiptavini.
Slík svör eru veitt til upplýsinga og til að bæta viðbragðstíma, en geta verið ónákvæm, ófullnægjandi eða rangtúlkuð.
Svör sem veitt eru með sjálfvirkum hætti:
- fela ekki í sér bindandi ráðgjöf eða skuldbindingu af hálfu Svar
- teljast ekki staðfesting á réttmæti upplýsinga
- eru notuð á ábyrgð viðtakanda
Svar ber ekki ábyrgð á tjóni, beinu eða óbeinu, sem kann að hljótast af notkun eða trausti á slíkum svörum.
Viðskiptavinum er bent á að leita staðfestingar hjá starfsmanni Svar þegar um er að ræða mikilvægar ákvarðanir eða atriði sem geta haft fjárhagsleg eða rekstrarleg áhrif.
4. Greiðslur
Verðlagning endurspeglar dagsetningar útgáfa, tilboða eða samninga. Öll aukaverk, sem Svar vinnur í þágu viðskiptavinar að hans ósk og ekki er kveðið á um sérstaklega í samningum milli aðila, eru gjaldkræf.
Lágmarks tímaeining: 0,5 klukkustundir á skrifstofutíma (9-16 virka daga, 9-15 föstudaga), eða 1 klukkustund á staðnum auk ferðatíma. Útkall utan vinnutíma lágmark 4 klukkustundir nema annað sé samið.
Breytingar á verðskrám
Svar getur breytt verðlagningu með 30 daga fyrirvara. Gjaldmiðlaháðir liðir eru innheimtir á gengi reikningsdags. Verðtryggðir liðir breytast með vísitölubreytingum.
Ferðakostnaður og flutningsskilmálar
Sérstök gjöld gilda um flutning búnaðar frá húsnæði Svars, viðgerðarflutning, ferða- og tímagjöld fyrir þjónustu utan venjulegra starfsstöðva, vinnu utan vinnutíma og ferðatíma vegna viðgerðar-/endurnýjunarþjónustu.
Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á að greiðslur fyrir þjónustu og búnað berist Svar á réttum tíma.
Andmæli skulu gerð tafarlaust og fyrir gjalddaga reiknings, annars telst reikningur samþykktur. Mánaðarlegir reikningar eru gefnir út þann 20. hvers mánaðar; minni verk eru reikningsfærð við verklok.
Búnaðarsala er reikningsfærð við afhendingu. Þjónustu-/innleiðingareikningar eru gefnir út mánaðarlega með 10 daga greiðslufresti fyrir veitta þjónustu þess mánaðar.
Verð í íslenskum krónum, leiðrétt fyrir gengisbreytingum ef við á. Reikningar eru á gjalddaga, ekki síðar en tilgreindur lokadagur. Falli reikningur eða aðrar samningsskuldbindingar í eindaga ber viðskiptavini að greiða dráttarvexti af reikningnum í samræmi við III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001.
Verkkaupi skal inna greiðslur af hendi sem eru kröfugreiðslur í banka. Ekki er heimilt að leggja beint inn á bankareikning Svars.
Allir reikningar Svars skulu vera sundurliðaðir með fylgiskjölum. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings getur verkkaupi ekki neitað greiðslu á þeim hluta sem er óumdeildur.
Greiðsludeilur skulu tilkynntar innan sjö daga frá útgáfu reiknings.
Svar hefur ráðið innheimtuaðila vegna gjaldfallinna reikninga. Eftir eindaga er innheimtuaðili með allan samningsrétt fyrir hönd Svars. Hafið samband við fjármálastjóra vegna tímabundinnar framlengingar á greiðslufrest áður en gjalddagi rennur út.
5. Skyldur og réttindi
Þáttur viðskiptavina
Viðskiptavinur skal tryggja að Svar hafi fullnægjandi aðgang að aðstöðu viðskiptavinar og eftir atvikum þriðja aðila þannig að Svar geti uppfyllt skyldur sínar samkvæmt skilmálum þessum. Viðskiptavini ber jafnframt að veita Svar allar þær upplýsingar sem Svar þarfnast þannig Svar geti uppfyllt skyldur sínar. Viðskiptavini er óheimilt breyta hugbúnaði sem honum er látinn í hendur af Svar eða stuðla að nokkrum breytingum á honum. Í almennum viðskiptum við Svar er gengið út frá því að viðskiptavinir séu ásáttir um eftirfarandi:
- Að veita Svar greiðan aðgang að búnaði eftir afhendingu í þeim tilgangi að uppfylla skyldur sínar samkvæmt samningum aðila.
- Að lána ekki búnað, samnýta ekki eða gefa þriðja aðila aðgang að búnaði án skriflegs samþykkis Svar.
- Að framselja ekki samning eða samningsbundin réttindi við Svar til þriðja aðila án samþykkis.
- Að selja ekki ógreiddan búnað frá Svar, framselja hann ekki né veðsetja eða ráðstafa honum á nokkurn þann hátt, sem fer í bága við eignarrétt Svar.
- Að nota búnað frá Svar aðeins í eigin þágu og afla hans ekki í því augnamiði að selja hann, leigja eða lána án samþykkis.
- Að heimila Svar að setja í búnað tæknibreytingar, sem Svar telur nauðsynlegar til dæmis af öryggisástæðum, eða tryggir betur virkni hans.
- Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á þeim árangri, sem næst af notkun vél eða hugbúnaðar eða þjónustu frá Svar.
- Að samningstíma loknum lokast aðgangur að hugbúnaði og öðrum tækjabúnaði frá Svar án tafar. Ber viðskiptavinur því ábyrgð á að afrita öll gögn í sinni eigu, sem vistuð eru hjá Svar áður en samningar renna út eða þeim er sagt upp. Bent skal á að alla jafna er auðvelt að afrita gögn og aðstoðar Svar við þá framkvæmd samkvæmt gjaldskrá hverju sinni.
- Að bjóða ekki starfsmönnum Svar, sem tengst hafa þjónustu viðskiptavinar, stöðu í eigin fyrirtæki innan 12 mánaða frá því að verkefnissamningi lauk nema að höfðu samráði við Svar.
- Að fara að landslögum og opinberum stjórnvaldsákvörðunum.
Þáttur Svars
Svar tryggir að starfsfólk hafi nauðsynlega sérþekkingu og vinni af fagmennsku. Svar áskilur sér rétt til að:
- Fjarlægja efni sem brýtur í bága við lög
- Hafna vinnu sem stangast á við lög eða gæti verið skaðleg
- Neita þjónustu og frekari innkaupum ef reikningur er ógreiddur 30+ daga eftir gjalddaga
- Neita aðgangi að gögnum ef reikningur er ógreiddur 60+ daga eftir gjalddaga
- Neita flutningi þjónustu til annarra þjónustuveitenda ef reikningar eru ógreiddir
- Eyða gögnum viðskiptavinar ef reikningur er ógreiddur 150+ daga eftir gjalddaga
Svar skal tilkynna verkkaupa um allar breytingar í rekstri sínum sem geta haft áhrif á getu þess til að sinna verkefnum samkvæmt samningi aðila.
6. Ábyrgð
Svar skuldbindur sig til gæðaþjónustu og búnaðar. Kaup á búnaði frá Svar eru háð lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000, þar sem ákvæðum þessara skilmála, sérskilmála, samninga eða viðskiptavenju milli aðila sleppir.
Svar ábyrgist, að allur vélbúnaður virki og sé í góðu lagi á afhendingardegi.
Sjálfgefin ábyrgð: 1 ár nema annað sé tilgreint. Notaður búnaður seldur án ábyrgðar nema um annað sé samið. Ábyrgð nær til framleiðslugalla, viðgerða og varahluta/vinnu. Ábyrgð gildir ekki, ef bilun verður, sem rekja má til annarra orsaka en framleiðslugalla, svo sem rangrar meðferðar, slits eða notkunar á rekstrarvöru.
Ábyrgð á rafhlöðum: 1 ár nema annað sé samið.
Viðskiptavinur skal tilkynna Svar tafarlaust þegar galli uppgötvast. Svar lagfærir galla á ábyrgðartíma án endurgjalds ef þeir stafa af framleiðslu.
Ábyrgð á vélbúnaði fellur niður ef viðskiptavinur brýtur í bága við leiðbeiningar framleiðanda, veldur rangri meðhöndlun, óviðkomandi þriðji aðili opnar/breytir búnaði, rangt spennutenging, óviðeigandi nettengingar, eða óhentugu umhverfi (ryk, hiti, raki).
Svar ber ekki ábyrgð á varðveislu þeirra gagna, sem vistuð kunna að vera á búnaði, nema um það sé samið sérstaklega.
Uppfylli búnaður ekki forskriftir á ábyrgðartíma og Svar getur ekki lagfært innan hæfilegs tíma, getur viðskiptavinur skilað búnaði til endurgreiðslu á söluverði.
Ábyrgð gildir aðeins á Íslandi nema annað sé samið.
Ábyrgð á forritapökkum
Svar ber enga ábyrgð á hugbúnaði frá þriðja aðila. Svar innir því ekki af hendi hugbúnaðarþjónustu eða villuleiðréttingar í neinni mynd nema um það sé samið sérstaklega.
Jafnframt tekst Svar ekki á hendur neins konar skuldbindingar varðandi forritapakkann eða notagildi hans í tilteknu skyni. Skilmálar framleiðanda gilda; viðskiptavinir fá skilmála beint frá framleiðanda.
Atvik utan ábyrgðar
Svar ber enga ábyrgð á kröfum sem stafa af búnaði sem viðskiptavinur útvegar og setur upp, breytingum viðskiptavinar á búnaði, notkun hugbúnaðar utan skilgreinds umhverfis, samsettum búnaði frá Svar og öðrum þjónustuveitum, eða virkni framleiðanda þriðja aðila.
Almennar takmarkanir á ábyrgð
Öll þjónusta er veitt án skuldbindinga um viðbragðstíma eða tiltæka varahluti hverju sinni nema um annað sé samið sérstaklega.
Svar ábyrgist ekki að búnaður eða þjónusta sé gallalaus, virki án reksturstruflana, að hugbúnaður starfi rétt eða að allar hugbúnaðarvillur sem og aðrar villur séu lagfærðar.
Svar undanskilur sig allri ábyrgð á öllu óbeinu eða afleiddu tjóni, svo sem rekstrartapi, glötuðum ágóða eða sparnaði, töpuðum gögnum eða öðru tjóni.
Utan þess sem greinir í skilmálum þessum skal bótaábyrgð Svars nema að hámarki jafnvirði þeirrar þóknunar sem viðskiptavinur hefur sannanlega greitt til Svar fyrir þá tilteknu þjónustu eða búnað sem tjónið tengist á síðustu þremur mánuðum fyrir það atvik sem orsakaði umrætt tjón.
7. Önnur ákvæði
Hugverkaréttur – uppgötvanir og uppfinningar
Svar áskilur sér allan rétt til hugverka er tengjast vörum og þjónustu sem látin er viðskiptavini í té, hvort sem um er að ræða hugverk í eigu Svars eða þriðja aðila.
Skilmálar þessir skulu engin áhrif hafa á hugverkarétt aðila og/eða afnotarétt af hvers konar atvinnuleyndarmálum, gögnum, trúnaðarupplýsingum eða öðru efni sem tengist búnaði eða þjónustu.
Skilmálar þessir hafa ekki í för með sér neins konar yfirfærslu á höfundarétti frá einum aðila til annars, nema þar sem ákvæði samninga kveða sérstaklega á um það.
Viðskiptavinur öðlast ekki einkarétt til notkunar á hugbúnaðinum, nema um það hafi verið samið sérstaklega.
Notkun vörumerkja
Svar getur ekki vísað til viðskiptavina á vefsíðu sinni eða kynningarefni án skriflegs samþykkis. Viðskiptavinir skulu fá samþykki Svars til að nota nafn þess/vörumerki.
Trúnaður
Öll gögn og upplýsingar viðskiptavinar skulu vera trúnaðarmál milli aðila. Efni samninga er trúnaðarmál milli Svar og viðskiptavinar þar til báðir aðilar hafa samþykkt annað skriflega.
Upplýsingar skal aðeins nota í þeim tilgangi sem þær voru fengnar og að því marki sem nauðsynlegt er við framkvæmd samningsskuldbindinga aðila.
Aðilar skuldbinda sig til að ljóstra ekki upp trúnaðarupplýsingum sem þeir hafa móttekið frá gagnaaðila. Opinberar upplýsingar teljast ekki trúnaðarmál nema birtar í gegnum brot. Þagnarskylda skal gilda áfram eftir að samningssambandi lýkur.
Framsal
Aðilar geta ekki framselt réttindi/skyldur án skriflegs samþykkis. Þó er aðilum heimilt að framselja til dótturfyrirtækja í fullri eign með viðeigandi leyfisflutningi.
Svar er þó heimilt að framselja skyldur sínar samkvæmt samningi án samþykkis viðskiptavinar ef slíkt er að mati Svar nauðsynlegt til að bregðast við atvikum sem nauðsynlegt er að bregðast við án tafar en einungis í tilvikum sem undirverktaki fær ekki aðgang að persónuupplýsingum viðskiptavinar.
Efni framsalshafi ekki skyldur sínar samkvæmt skilmálum þessum skal framseljandi bera ábyrgð á réttum efndum hans gagnvart gagnaðila.
Tímafrestur um tilkynningu á galla
Viðskiptavinur Svar glatar rétti sínum til þess að bera fyrir sig galla, ef hann tilkynnir ekki Svar án ástæðulauss dráttar frá því að hann varð galla var eða mátti verða hans var.
Ef viðskiptavinur leggur ekki fram kvörtun innan árs frá þeim degi, er hann veitti búnaði eða þjónustu viðtöku, getur hann ekki síðar borið gallann fyrir sig.
Í samningum við Svar geta samningsaðilar ekki gert neina kröfu, af hvaða tegund eða tilefni hún kann að vera, eftir að meira en tvö ár eru liðin frá því að kröfuefnið varð til.
Óviðráðanleg atvik (Force Majeure)
Geti Svar vegna óviðráðanlegra atvika ekki efnt skyldur sínar gagnvart samningsaðila er félagið laust undan öllum skuldbindingum sínum um þann tíma sem óviðráðanleg atvik standa yfir.
Með óviðráðanlegum atvikum (e. Force Majeure) er átt við atburð eða aðstæður sem ekki eru á valdi Svar, enda sé þannig háttað um þau að Svar hafi ekki verið unnt að yfirvinna þau með eðlilegum ráðum.
Meðal slíkra atvika eru stríð, borgaraleg óeirð, skemmdarverk, náttúruhamfarir, aðgerðir stjórnvalda, viðskiptabanningar, flutningabanningar, orkuskortur, netárásir, brot undirverktaka og tengdar truflanir sem hafa áhrif á starfsemi Svars.
Komi til þess að óviðráðanleg atvik standi yfir í 30 daga samfellt eða lengur getur Svar rift eða sagt samningi við samningsaðila fyrirvaralaust.
Riftun
Hvor aðili getur rift samningi vegna verulegra brota samkvæmt almennum lögum. Svar getur einnig rift vegna:
- Vangreiðslu 30+ daga eftir gjalddaga
- Vanefnda innan 30 daga frá skriflegri tilkynningu
- Notkunar búnaðar í bága við notkunarskilmála eða leiðbeiningar
- Notkunar búnaðar umfram skilgreint hámark Svars á tilteknu tímabili
- Gjaldþrots, skilanefndar eða gjaldþrotaskipta viðskiptavinar
- Óheimillar þjónustu þriðja aðila
- Annarra þjónustubrota og kostnaðar sem Svar verður fyrir
Verði samningi rift af hálfu Svar ber viðskiptavini að greiða áfallin gjöld samkvæmt samningum auk alls kostnaðar.
Viðskiptavinur skal halda Svar skaðlausum af öllum útgjöldum og tekjumissi sem Svar kann að verða fyrir vegna vanefnda viðskiptavinar á þjónustusamningi.
Ef margir samningar eru við einn viðskiptavin: brot á einum heimilar uppsögn allra.
Lög og varnarþing
Íslensk lög gilda. Skulu undanþæð ákvæði laganna víkja fyrir samningum þessum og skilmálum samrýmist þau þeim ekki.
Neytendaverndarlög gilda ef hagstæðari en þessir skilmálar. Ágreiningsmál skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Síðast uppfært: júlí 2026