Persónuverndarstefna
Hér má finna upplýsingar um hvernig Svar tækni ehf. meðhöndlar persónuupplýsingar.
Þótt þjónusta Svar sé aðallega veitt til fyrirtækja þá vinnum við í mörgum tilfellum persónuupplýsingar tengiliða hjá viðskiptavinum, svo sem nöfn, netföng, símanúmer og starfsheiti. Persónuverndarstefna þessi tekur til slíkrar vinnslu persónuupplýsinga.
1. Ábyrgðaraðili
Svar tækni ehf., kt. 470911-0260, Stórhöfði 17, 110 Reykjavík, er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við starfsemi fyrirtækisins og þessa vefsíðu.
2. Hvaða upplýsingum söfnum við?
Við söfnum eftirfarandi upplýsingum þegar þú hefur samband við okkur:
- Nafn og netfang
- Símanúmer (ef gefið upp)
- Efni fyrirspurnar
- Upplýsingar um fyrirtæki eða vinnuveitanda, svo sem heiti fyrirtækis og starfsheiti tengiliðar, ef við á.
Til gestafylgni notum við tvö kerfi:
- Zoho SalesIQ, skráir hvaða síður eru skoðaðar, hvaðan gestir koma og flettir upp fyrirtæki út frá IP-tölu. Zoho Corporation er vinnsluaðili og gögnin eru hýst innan EES.
- Google Tag Manager, umsýslukerfi fyrir mælingamerki, rekið af Google. Það sem er mælt gegnum það getur breyst; nánari upplýsingar veitum við hvenær sem er ef þú spyrð.
Hvorugt hleðst fyrr en þú samþykkir það. Þú ert spurð(ur) þegar þú kemur fyrst á síðuna, og getur hafnað án þess að það hafi nokkur áhrif á virkni vefsins. Þú getur skipt um skoðun hvenær sem er hér að neðan.
Staða: Þú hefur ekki tekið afstöðu enn.
Óháð því vali geymum við eftirfarandi. Fyrsti liðurinn geymist hjá okkur; hinir aðeins í vafranum þínum. Ekkert af þessu er notað til rakningar:
- Fyrirspurnir úr sambandsformi, sendir þú okkur fyrirspurn geymum við nafn, netfang, fyrirtæki, símanúmer og skilaboðin sjálf, ásamt samþykkinu sem þú gafst og orðalaginu sem þú samþykktir. Þetta er notað til að svara þér og til að halda samskiptasögunni til haga, ekki til markaðssetningar nema þú biðjir um það. Fyrirspurnin er einnig færð í viðskiptamannakerfi okkar (Zoho CRM). Þú getur beðið um að henni verði eytt hvenær sem er með því að hafa samband.
- Spjallauðkenni, býr til þegar þú opnar spjallið við Iðunni, svo samtalið haldist saman ef þú endurhleður síðuna. Það er ekki búið til fyrr en þú opnar spjallið sjálf(ur), og tengist engum öðrum heimsóknum þínum.
- Stillingar, valið tungumál spjallsins og hvort þú notar ljóst eða dökkt þema.
- Val í verðreiknivélinni, það sem þú hakar við í reiknivélinni fyrir 7C, svo valið haldist ef þú flakkar um síðuna og kemur til baka. Það hverfur af sjálfu sér þegar þú lokar flipanum og er hvergi sent til okkar.
- Innskráningarkaka, aðeins hjá starfsfólki Svars sem skráir sig inn í stjórnborð síðunnar.
Ekkert af þessu er notað til að fylgjast með þér á milli heimsókna eða á milli vefsvæða. Það sem geymist í vafranum getur þú hreinsað hvenær sem er í stillingum hans; spjallið byrjar þá einfaldlega upp á nýtt. Fyrirspurnum sem geymast hjá okkur eyðum við ef þú biður um það.
3. Tilgangur vinnslu
Persónuupplýsingar eru notaðar til að:
- Svara fyrirspurnum og veita þjónustu
- Halda utan um viðskiptatengsl
- Uppfylla lagalegar skyldur
4. Heimild fyrir vinnslu
Vinnsla persónuupplýsinga byggir á samþykki hins skráða (þegar þú sendir okkur fyrirspurn), samningi, eða lögmætum hagsmunum fyrirtækisins í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
5. Varðveislutími
Persónuupplýsingar eru varðveittar svo lengi sem þörf er á til að uppfylla tilgang vinnslunnar eða samkvæmt lagaskyldu. Fyrirspurnir eru almennt varðveittar í allt að 2 ár.
6. Réttindi þín
Þú átt eftirfarandi réttindi samkvæmt persónuverndarlögum:
- Rétt til aðgangs að þínum upplýsingum
- Rétt til leiðréttingar
- Rétt til eyðingar („rétturinn til að gleymast")
- Rétt til takmörkunar á vinnslu
- Rétt til andmæla
- Rétt til flutnings gagna
7. Öryggi upplýsinga
Við gerum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn óleyfilegum aðgangi, breytingum, birtingu eða eyðingu.
8. Samskipti
Ef þú hefur spurningar um persónuverndarstefnu okkar eða vilt nýta réttindi þín, vinsamlegast hafðu samband:
- Netfang: sala@svar.is
- Sími: +354 510 6000
- Heimilisfang: Stórhöfði 17, 110 Reykjavík
9. Viðskiptavinir og tengiliðir þeirra
Fyrirtæki falla ekki undir persónuverndarlög en við vinnum með persónuupplýsingar tengiliða okkar viðskiptavina, svo sem nöfn, netföng, símanúmer og starfsheiti. Slík vinnsla fer fram í tengslum við samskipti, þjónustu, samningssamband og rekstur viðskiptatengsla.
10. Breytingar á stefnu
Svar tækni ehf. áskilur sér rétt til að uppfæra þessa persónuverndarstefnu. Breytingar taka gildi við birtingu á vefsíðu.
Síðast uppfært: ágúst 2026