Snjallari rekstur með gervigreind
Finndu hvar gervigreind gæti skapað mestan ávinning í þinni starfsemi og fáðu aðstoð við innleiðinguna.
Viðtalskönnun um stöðu gervigreindar í þínu fyrirtæki
Veistu hvernig starfsfólkið þitt er að nota gervigreind við störf? Með einfaldri viðtalskönnun gröfumst við fyrir um nákvæma notkun meðal þinna starfsmanna og skilum þér niðurstöðum í ítarlegri skýrslu með stöðugreiningu og tillögum að næstu skrefum.
Innleiðing og ráðgjöf
Frá hugmynd að framkvæmd. Við greinum ferla, kortleggjum tækifæri og hjálpum fyrirtækjum að innleiða gervigreind þar sem hún skilar mestum ávinningi. Áhersla á verklag, stefnu, verkfæri og mælanlegan árangur.
- Greining á notkunartækifærum
- Gervigreindarstefna
- Ferlaumbætur
- Innleiðingarverkefni
Öryggi og mörk
Ráðgjöf og leiðsögn um skjalfestingu á áhætturamma og gagnamörkum svo til staðar séu skýr sameiginleg viðmið innan skipulagsheildarinnar um hvað má og hvað má ekki varðandi notkun á gervigreind.
Vinnustofur og þjálfun
Fræðsla og vinnustofur sem byggja upp þekkingu og sjálfstraust starfsfólks og hjálpa þeim að tileinka sér örugga notkun gervigreindar.
Fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref og vilja læra hvernig á að tala við gervigreind til að ná tilætluðum árangri. Áhersla lögð á hagnýta notkun, góð vinnubrögð, öryggi og hvernig gervigreind getur auðveldað dagleg verkefni.
Fyrir þá sem vilja sérþjálfun á sínu sviði, hvort sem það eru fjármál og bókhald, markaðsmál, mannauðsmál, sala, þjónusta eða önnur sérhæfð verkefni. Þjálfunin tekur mið af raunverulegum verkefnum og áskorunum þátttakenda og nýtist strax í daglegu starfi.
Sérstaklega ætluð stjórnendum sem vilja skilja stefnumótandi áhrif gervigreindar á rekstur, samkeppnishæfni og framtíðarþróun í sínum rekstri. Fjallað er um tækifæri, áhættur, innleiðingu og hvernig leiða má breytingar sem skapa raunverulegan viðskiptaávinning.
Ætlaðar til að veita innblástur, fræðslu eða hagnýta sýnikennslu sem veitir skýra mynd af möguleikum gervigreindar. Hentar vel fyrir starfsmannafundi, ráðstefnur, viðburði eða stjórnendafundi þar sem markmiðið er að vekja áhuga, auka skilning og skapa umræðu um áhrif tækninnar á starfsemi og störf.
Markaðssetning með gervigreind
Ráðgjöf og leiðsögn um markaðssetningu með gervigreind. Meira efni, betri skilaboð og skilvirkara markaðsstarf. Við hjálpum þér að nýta gervigreind í markaðssetningu, efnisgerð og samskiptum til að auka sýnileika, skilvirkni og árangur. Frá stefnumótun og efnisáætlunum yfir í sjálfvirknivæðingu markaðsverkefna.
- Efnisgerð
- Samfélagsmiðlar
- Auglýsingagerð
- SEO og AEO leitarvélabestun
- Markaðssjálfvirkni
Sérsmíði
Við greinum ykkar sérstöku þarfir og teiknum upp, hönnum og þróum lausnir eða ferli sem leysa ykkar stærstu áskoranir.