Gestanet

Aðskilið og öruggt net fyrir gesti

Til baka í netlausnir

Þráðlaus net

Gestanet gerir fyrirtækjum kleift að bjóða viðskiptavinum og öðrum gestum aðgang að internetinu án þess að veita aðgang að innri kerfum fyrirtækisins. Með gestaneti er hægt að aðskilja umferð gesta frá starfsfólki, setja tímatakmarkanir, birta innskráningarsíðu með vörumerki fyrirtækisins og fylgjast með notkun á einfaldan hátt. Lausnin hentar sérstaklega vel fyrir skrifstofur, verslanir, hótel, veitingastaði, skóla og opinberar stofnanir.