Smíðum ný kerfi eftir óskum viðskiptavina

Þegar tilbúin kerfi passa ekki smíðum við lausn sem fellur að ykkar ferlum og tengist þeim kerfum sem fyrir eru.

Greining á þörfinni

Við byrjum á að kortleggja ferlið sjálft. Oft lýsir fólk lausninni sem það telur sig þurfa fremur en vandamálinu sem á að leysa.

Smíði á ykkar ferlum

Forritið er byggt utan um vinnulagið eins og það er, í stað þess að rekstrinum sé snúið að tilbúnu kerfi.

Tenging við kerfin sem fyrir eru

Bókhald, tímaskráning, þjónustuver eða annað sem þarf að tala saman, svo gögnin séu skráð einu sinni.

Þið getið haldið áfram sjálf

Við kennum teyminu á lausnina svo hún staðni ekki ef þarfirnar breytast, eins og gert var hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Rekstur og viðhald

Stuðningur eftir afhendingu og lagfæringar þegar ferlar eða kröfur breytast.

Sjáðu hvernig Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins byggði sínar eigin lausnir með okkur.

Lesa reynslusöguna