7C fyrir öll fyrirtæki
Fjórir pakkar, frá einföldu sölukerfi upp í heildarlausn. Veldu þann sem hentar þínum rekstri í dag; hægt að stækka síðar.
Einfaldur
Hentar fyrirtækjum sem eru með bókara og vilja einfalt sölukerfi.
Lítill
Hentar litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
Miðlungs
Hentar vaxandi fyrirtækjum.
Stór
Hentar stærri fyrirtækjum og þjónustufyrirtækjum.
Í öllum pökkum: Mælaborð, Freyja, Þjóðskrá, Rafrænir reikningar og Aðgangur fyrir bókara.
Kynningarverð gildir fyrstu 9 mánuði áskriftarinnar, frá fyrsta mánuði. Fullt verð kemur fram í samningnum. Öll verð á mánuði, án VSK.
Hvað kostar 7C fyrir þig?
Veldu pakka og lagaðu hann að þínum rekstri: bættu við einingum eða taktu þær úr sem þú notar ekki. Þú getur líka valið stakar einingar, og ef pakki er hagstæðari fyrir valið þitt bendum við á hann.
Samantekt
Notkunargjöld bætast við eftir notkun og eru rukkuð eftir á, sjá töfluna hér að neðan.
Senda fyrirspurnInnifalið magn og verð umfram það
Þessir liðir eru mældir og rukkaðir eftir á. Innifalda magnið fylgir áskriftinni í hverjum mánuði; aðeins það sem fer umfram er gjaldfært.
| Þjónusta | Innifalið á mánuði | Verð umfram |
|---|---|---|
| Freyja-köll | 150 (250 í Miðlungs, 500 í Stór) | 20 kr / kall |
| PDF-innlestur reikninga | 10 | 20 kr / reikning |
| Þjóðskrárflettingar | 50 | 17 kr / flettingu |
| Rafrænir reikningar | 20 | 35 kr / reikning |
API-gagnamagn
API-aðgangurinn kostar 3.700 kr á mánuði og er undir Veftengingum í reiknivélinni. 1 GB á mánuði fylgir honum. Hvert verðþrep gildir um gagnamagnið innan þess, og hvert byrjað GB umfram telst heilt.
| Gagnamagn á mánuði | Verð |
|---|---|
| 0–1 GB | Innifalið |
| 1–10 GB | 1.900 kr / GB |
| 10–25 GB | 1.200 kr / GB |
| Yfir 25 GB | Samkvæmt samningi |
Verð eru án VSK.
Berðu saman pakkana
Það sem er innifalið í hverjum pakka. Smelltu á einingu til að sjá hvað hún gerir.
| Eining | Einfaldur | Lítill | Miðlungs | Stór |
|---|---|---|---|---|
| 1 | 1 | 2 | 3 | |
Hversu margir starfsmenn geta verið með eigin aðgang að kerfinu. Fleiri notendum má bæta við gegn gjaldi á hvern. | ||||
| — | — | 5 | 10 | |
Hversu margir launþegar eru innifaldir í launavinnslunni. Hver launþegi umfram kostar 400 kr á mánuði. | ||||
| 150 | 150 | 250 | 500 | |
Köll til Freyju sem eru innifalin í hverjum mánuði. Hvert kall umfram kostar 20 kr. | ||||
Yfirlitssíða með stöðunni í rekstrinum, sölu, útistandandi og því sem þarf að afgreiða. | ||||
Innbyggður aðstoðarmaður sem svarar spurningum um kerfið og gögnin í því. | ||||
Uppfletting á fyrirtækjum og einstaklingum þannig að nafn og heimilisfang fyllist sjálft út. | ||||
Reikningar sendir og mótteknir rafrænt milli kerfa í stað PDF í tölvupósti. | ||||
Bókari eða endurskoðandi fær sinn eigin aðgang og þarf ekki afrit af gögnum sendum til sín. | ||||
Skrá yfir viðskiptamenn með sögu, stöðu og útistandandi kröfum. | ||||
Sölureikningar búnir til, sendir og bókaðir, grunnurinn undir allri útgáfu. | ||||
Skrá yfir lánardrottna og kostnaðarreikninga, hvað á að greiða og hvenær. | ||||
Sjálft bókhaldið, færslur, lykilskrá og fjárhagsskýrslur. Bankaafstemmingar og rafræn VSK-skil fylgja. | ||||
Bankayfirlit lesið inn og stemmt af við bókhaldið í stað þess að para færslur handvirkt. Fylgir Fjárhag. | ||||
VSK-skýrslan tekin saman úr bókhaldinu og skilað rafrænt. Fylgir Fjárhag. | ||||
Vinnslur sem loka árinu og undirbúa ársreikning. Fylgir Fjárhag. | ||||
Vörulisti og lagerstaða, uppfærð með sölu og innkaupum. | ||||
Starfsmannaskrá með þeim upplýsingum sem launavinnsla og rekstur þarf. Fylgir pökkunum og er ekki seld stök. | ||||
Endurtekin reikningsútgáfa fyrir áskriftir og þjónustusamninga, gefin út sjálfkrafa á föstu millibili. | ||||
Kostnaðarreikningar fara í samþykktarferli hjá réttum aðila áður en þeir eru bókaðir og greiddir. | ||||
Launavinnsla og launaseðlar. | ||||
Verkbókhald, tími og kostnaður skráður á verk eða viðskiptavin svo arðsemin sé sýnileg. | ||||
Rekstrinum skipt í deildir eða kostnaðarstöðvar og hægt að lesa niðurstöðuna fyrir hverja. | ||||
Strjúktu til hliðar í töflunni til að sjá alla pakkana.
Ekki viss hvaða pakki hentar?
Við ráðleggjum þér út frá stærð fyrirtækisins, atvinnugrein og því sem þig vantar. Fyrsta ráðgjöf kostar ekkert.