- Internet

Fyrirtækjatengingar
– eru þær allar eins?

Ef netið virkar ekki þá virkar ekki neitt! 
Því er mikilvægt velja réttan þjónustuaðila með auðveldu aðgengi nánast 24/7 þjónustu alla daga ársins. Einnig er mikilvægt velja réttan búnað. Beinir er ekki bara beinir, þeir eru ansi mismunandi og mörg fyrirtæki eru vinna á heimilis beinum sem geta virkað til skamms tíma án vandræða. En þegar eitthvað gerist er nauðsynlegt auðvelt lagfæra bilunina. 
Við hjá Svar notum eingöngu viðurkenndan búnað sem við treystum og getum stjórnað með skýjalausnum frá viðkomandi framleiðanda. Mjög mikilvægt er geta brugðist hratt og vel við ef til bilunar kemur. Því skiptir búnaður miklu máli og nokkrar krónur í sparnað á röngum stað getur komið harkalega í bakið á fólki. 

Hvað er
Internet?

Samhengið á milli internetsins, beinis (router), netskipta ( switcha) og þráðlausra neta er mjög mikilvægt. Velja þarf búnað sem er viðurkenndur og frá traustum og öruggum framleiðanda. Í dag er öllum þessum hlutum stjórnað í skýjalausnum og á heyra til undantekinga ef hann bilar. Auðvelt á vera rekja bilanir og bæta við nýjum aðilum eða búnaði inn á netið sem er lífæð allra fyrirtækja í dag. 
Það færist líka mikið í vöxt nýta sér þráðlausa netið sem Internet tengingu notanda. Þaráðlaust net sem er vel upp sett með réttum búnaði er ekki síðra en vírað net í tölvu notandans. Í dag er engin þörf á draga kapla og setja tengla í rennur fyrir hefðbundið net. Það er einungis þörf á því við sérstakar aðstæður og þá fyrir fáa aðila sem einhverra hluta vegna þurf hafa hlutina snúrutengda en næstum 99% aðila þurfa ekki snúrutengan búnað. Þráðlausu kerfin eru orðin mjög þróuð og geta fullkomlega staðið undir nettengingum flestra.

Það sem helst nefna hafi sérstaklega þörf á snúrutengum búnaði er í leikjaheiminum þar sem millisekúndur geta skipt höfuðmáli. 

Þekking okkar

Við hjá Svar höfum áratuga reynslu í Internet tengingum og vöndum okkur við að bjóða aðeins það besta á hverjum tíma. Í dag erum við mest að mæla með og nota búnað frá Ubiquiti (Unifi), sem er hagstæður í verði og auðveldur í uppsetningu og stýringu. 

Einnig ber að nefna að þjónustuaðilar á grunn fjarskiptaþjónustu bjóða tvennskonar tengingar á ljósleiðurum, þ.e. heimilistengingar og fyrirtækjatenginar.
Hver er munurinn á þessu tvennu?  Helst ber að nefna að þetta er oftast sami ljósleiðarinn en búnaður getur verið mismunandi á bak við þá þjónustuna sem veitt er.
Ef um fyrirtækjaþjónustu er að ræða eru færri aðilar að nýta sömu rásir en helsti munur er sá að þjónustuaðilar á ljósleiðaralögnum geta gefið sér allt að 3-5 virka daga til að gera við ljósleiðarann ef um heimilistengingu er að ræða en mun skemmri tíma ef um fyrirtækjatengingu er að ræða.
Þetta hefur þó ekki valdið miklum vandræðum hér á landi hingað til en við mælum alltaf með að nýta sér fyrirtækja tengingu ef reksturinn er 100% háður því að Internetið sé alltaf virkt. 

Varaleiðir:

Í dag bjóðast hagstæðar leiðir sem varaleiðir. Hér er verið að nýta sér 4G/5G tæknina sem tekur við ef hefðbundin Internet leið um ljósleiðara bregst einhverra hluta vegna.

Svar
mælir með:

  • Nýta sér fyrirtækja tengingar ef fyrirtækið er háð Internetinu. 
  • Velja viðurkenndan búnað; beini, netsskipti og þráðlausa senda. 
  • Vinna í þráðlausu umhverfi, það einfaldar margt og er minni kostnaður 
  • Ef þú ert með gamlan búnað, endurnýjaðu hann. 
  • Velja viðurkenndan þjónustuaðila til að sjá um Internetið og þjónustuna, við hjá Svar þjónustum hundruði aðila dagsdaglega og reynum að veita góða þjónustu. 
  • Setja upp 4G/5G varaleið ef fyrirtækið er mjög háð því að Internetið sé alltaf til staðar.