Senda og móttaka
rafræna reikninga

Það að senda og móttaka rafræna reikninga (og önnur rafræn viðskiptaskjöl) hefur í för með sér margvíslega kosti, hér eru nokkrir þeirra: 

  • Aukin sjálfvirkni, sparar vinnu og tíma
  • Sparar kostnað
  • Rekjanleiki og aukin yfirsýn
  • Reikningarnir eru frekar greiddir á réttum tíma
  • Fljótlegt, einfalt og þægilegt 

Aukin sjálfvirkni með
rafrænum reikningum

Stafræn þróun leiðir til aukinnar sjálfvirkni, og að senda/mótaka rafræna reikninga er auðvelt skref í átt að stafrænum rekstri og mikilvægur liður í því að sjálfvirknivæða bókhaldið. 
Sjálfvirkni ber með sér marga kosti, í nútímasamfélagi er tími af skornum skammti, þitt fyrirtæki sparar mikilvægan tíma með því að taka upp rafrænar sendingar/móttöku á reikningum og öðrum viðskiptaskjölum. 

Sparar kostnað,
minni handavinna

Tími er peningar eins og skáldið sagði, því erum við hjá Svar svo sannarlega sammála. Lausnir frá Unimaze munu spara dýrmætan tíma með aukinni sjálfvirknivæðingu. Þar að auki er það að senda rafræna reikninga margfalt ódýrara en að senda reikninga á pappír. Allur efniskostnaður er sparaður og rafrænar sendingar hafa í för með sér gríðarlegan sparnað.

Rekjanleiki og aukin yfirsýn
með rafrænum reikningum

Með því að senda rafræna reikninga getur þú séð nákvæmlega hvenær reikningurinn var sendur, hvenær hann barst til móttakanda og hvenær móttakandi náði í reikninginn. Ef reikningnum er hafnað sést það samstundis svo hægt sé að bregðast fljótt og örugglega við. 

Með lausn frá Svar og Unimaze getur þú séð alla þá reikninga sem þitt fyrirtæki hefur sent og flokkað eftir t.d. viðskiptamönnum eða dagssetningu. Einnig er hægt að sjá alla samskiptasögu við ákveðna viðskiptamenn og gera athugasemdir við reikninga, allt á sama staðnum. 

Skilvirkari greiðslur,
minni handavinna

Að fá reikninga greidda á réttum tíma skiptir öll fyrirtæki máli, með því að senda rafrænan reikning sem fer beint í bókhaldskerfi móttakanda margfaldast líkurnar á því að fá reikninginn greiddur á tilsettum tíma. Engar tafir vegna sendinga eða vegna seina gangs hjá móttakanda, sjálfvirkt bókhald er skilvirkt bókhald.

Hagræðing þess að móttaka
rafrænna reikninga

Til þess að hagræðing af rafrænum viðskiptum sé sem mest er lykilatriði að taka einnig á móti rafrænum reikningum. 
Þegar þú velur að móttaka rafræna reikninga fara reikningarnir beint inn í stafræna innhólfið í Uniconta, þetta sparar tíma og handavinnu og minnkar mannleg mistök. Reikningurinn færist sjálfkrafa inn í samþykktarkerfið í Uniconta og síðan er hægt að uppfæra dagbókina og fjárhaginn nánast með örfáum handtökum.


Öryggi

Móttaka rafræna reikninga er öruggara en önnur sendingarform t.a.m. reikningar á pappír eða í tölvupósti. Rafrænir reikningar með Unimaze skeytamiðlaranum uppfylla öll helstu nauðsynleg öryggisskilyrði og kerfið er hýst í skýinu til þess að engin gögn tapist. 

Aukinn
hagnaður

Stafrænar lausnir og aukin sjálfvirkni minnkar kostnað. Með því að senda og móttaka rafræn viðskiptaskjöl útrýmir þú efniskostnaði vegna pappírs og umslaga sem og kostnaði við hefðbundna póstsendingu.  

Hagnaðurinn felst einnig í því að viðskiptin geta gengið mun hraðar fyrir sig en ella. Rafræn skeyti birtast samstundis og þau birtast beint inn í Uniconta stafræna innhólfinu, villulaust. 

Hver getur móttekið
rafræna reikninga?

Ef þú ert í vafa um hvort fyrirtæki sem þú ert í viðskiptum við geti móttekið rafræna reikninga, getur þú flett kennitölu þeirra með e-business tools.